Mexíkósk kjúklingasúpa
Úr Uppskriftavefurinn
Fara í flakkFara í leit
Súpa
- 1 poki Mexico súpa frá Torró
- 2 kjúklingabringur
- 2 stk sætar kartöflur
- 1 dós salsa sósa
Meðlæti
- Nachos snakk
- Sýrður rjómi
- Rifinn ostur.
Aðferð
Kjúklingurinn skorinn niður í bita og steiktur úr pipar og mjög litlu salti. Súpan sett í pott eins og tekið er fram á pokanum. Þegar að súpan er farin að sjóða þá er salsasósan sett út í. Sætu kartöflurnar eru teknar og skornar niður í teninga og látnar út í. Svo er kjúklingnum skutlað út í með miklum brag Súpan er látin sjóða í um 20 mínútur eða þangað til að sætu kartöflurnar eru orðnar alveg mjúkar.
Súpan er síðan borin fram með nachos sem er mulið í súpuna, sýrðum rjóma og osti.