Snarkandi risarækjur

Úr Uppskriftavefurinn
Útgáfa frá 20. febrúar 2005 kl. 20:13 eftir 194.144.65.21 Útgáfa frá 20. febrúar 2005 kl. 20:13 eftir 194.144.65.21
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakkFara í leit

Fyrir 2

  • 400 g hráar risarækjur
  • 2 rauðir chiliávextir
  • 5 msk ólífuolía
  • 3 hvítlauksrif (marin)
  • salt og pipar
  • 0.5 dl hvítvín (má sleppa)

Skerið chiliávextinn í tvennt eftir endilöngu. Hitið olíuna á pönnu og setjið rækjur, chili og hvítlauk út í. Steikið á háum hita í u.þ.b. 3 mínútur. Hrærið í á meðan. Þegar rækjurnar eru orðnar bleikar er rétturinn tilbúinn. Skellið hvítvíninu saman við í lokin. Berið fram strax.