Brownie með saltri karamellu og pekanhnetum
Ég hef notað þessa uppskrift til að búa til browniebita í fermingar, útskriftar og afmælisveislur. Baka slatta sker í bita og frysti í boxum og þá þarf ekki annað en að leyfa þeim að þiðna í smá stund til að vera tilbúnar á veislubakka ásamt ferskum jarðarberjum. Þessi uppskrift smellpassar í ferkantað form uþb 20x30cm og gerir þá 40-60 bita. Ég hef verið að skera mínar í 60 litla bita sem henta mjög vel á veislubakka.
Kakan
- 150 g suðusúkkulaði
- 110 g smjör
- 4 stór egg
- 4 dl sykur
- 2 1/4 dl hveiti
- 3/4 tsk salt
Karamella
- 100 g smjör
- 1 1/2 dl púðursykur
- 1/2 tsk salt
- 3 msk rjómi
- 1 1/4 bolli pekanhnetur gróft saxaðar
Aðferð
Súkkulaði og smjör brætt saman yfir vatnsbaði og svo látið kólna. Á meðan eru egg og sykur þeytt saman í hrærivél þar til orðið létt og ljóst. Hveiti og salti blandað saman og svo blandað varlega saman við eggin og sykurinn. Í lokin er súkkulaðismjörinu blandað varlega saman við. Formið smurt en gott að setja bökunarpappír í botninn til að það sé auðvelt að ná henni úr forminu. Deiginu hellt í formið og kakan bökuð við 180C í ca 20 mín. Á meðan er karamellan búin til.
Smjör, púðursykur og salt sett í pott og brætt saman þar til karamella fer að myndast, hrært vel í og passa að brenna ekki. Þá er rjómanum blandað saman við. Þegar kakan er búin að vera 20 mín í ofninun er hún tekin út. Hnetunum dreift yfir og karamellunni hellt yfir og reyna að hafa þetta svolítið jafn dreift. Kakan svo sett aftur inn í ofn og bökuð áfram í 10-15 mínútur.