Toblerone frauð

Úr Uppskriftavefurinn
Stökkva á: flakk, leita

Hráefni

  • 300 g Toblerone súkkulaði
  • 2 egg
  • 2 tsk flórsykur
  • 4 dl rjómi, léttþeyttur

Leiðbeiningar

Saxið Toblerone súkkulaði og bræðið yfir heitu vatnsbaði. Þeytið saman egg og flórsykur og hrærið saman við súkkulaðið. Kælið lítillega og blandið súkkulaðimassa og þeyttum rjóma varlega saman. Setjið í skálar og kælið í ísskáp í 2–3 klst. Skreytið að vild, t.d. með bláberjum og rifsberjum