Munur á milli breytinga „Hamborgarhryggur“

Úr Uppskriftavefurinn
Stökkva á: flakk, leita
(Ný síða: ''' Eftirfarandi er gott að gera daginn áður''' == Sykurgljái == *2 bollar púðursykur *1 bolli tómatsósa *1/2 bolli sætt sinnep 1 tsk paprikuduft 1 bolli kók Hrært saman dag...)
 
Lína 1: Lína 1:
''' Eftirfarandi er gott að gera daginn áður'''
 
 
 
== Sykurgljái ==
 
== Sykurgljái ==
 
*2 bollar púðursykur
 
*2 bollar púðursykur
Lína 20: Lína 18:
  
 
Gott er a bera fram með þessu sykurbrúnaðar kartöflur, eplasalat og rauðkál.
 
Gott er a bera fram með þessu sykurbrúnaðar kartöflur, eplasalat og rauðkál.
 +
 +
[[Category:Kjöt]]
 +
[[Category:Aðalréttir]]
 +
[[Category:Íslenskur matur]]
 +
[[Category:Jól]]

Útgáfa síðunnar 2. maí 2011 kl. 16:02

Sykurgljái

  • 2 bollar púðursykur
  • 1 bolli tómatsósa
  • 1/2 bolli sætt sinnep

1 tsk paprikuduft 1 bolli kók

Hrært saman daginn áður og geymt í kæli

Suðan á hryggnum

Hryggurinn settur í pott með köldu vatni. Síðan hituað rólega að suðu á hálfum straum. Þegar vatnið sýður er hitinn lækkaður og hryggurinn látinn malla við vægan hita í 20-30 mínútur. Þá er slökkt og hryggurinn látinn kólna í soðinu.

Upphitun á hryggnum

Hryggurinn er færður á fat sem passar í ofninn, bróðurpartinum af sykurgjáanum er smurt á hrygginn og hann hitaður við 180 gráður í um það bil 30 mín.

Sósa

Soðið af hryggnum er sigtað í pott, það er síðan þykkt með smjörbollu (brætt smjörlíki og hveiti). Grísakraft teningi er bætt við ásamt 1 lárviðarlaufi og 4 negulnöglum og látið sjóða í um það bil 20 mínútur. Því næst er sósan sigtuð yfir í annan pott og bætt í hana dálitlum rjóma, restinni af sykurgljáanum og skvettu af rauðvíni. Þá er sósan smökkuð til með salti og pipar.

Gott er a bera fram með þessu sykurbrúnaðar kartöflur, eplasalat og rauðkál.